Auðkenni
Tegund einingar
Leyfileg nafnaform
Hliðstæð nafnaform
Staðlað form nafns/nafna samkvæmt öðrum reglum
Aðrar nafnmyndir
Auðkenni fyrir stofnanir
Lýsing
Fæðingar- og dánarár
Saga
Björn lauk stúdentsprófi frá MA 1951 og cand. oecon.-gráðu frá Háskóla Íslands 1953. Að námi loknu starfaði hann sem fulltrúi hjá Regin hf. og Últímu hf. 1955-1966, sinnti bókhaldi og eignaumsýslu 1966-1972 og var starfsmaður Landssambands íslenskra verslunarmanna 1972 til 1989, þegar hann hóf rekstur eigin fyrirtækis.
Björn sat m.a. í bankaráði Alþýðubankans 1970-1976, stjórnum Landssambands íslenskra verslunarmanna 1957-1989, Verslunarmannafélags Reykjavíkur 1960-1972 og Lífeyrissjóðs verslunarmanna til fjölda ára, auk miðstjórnar ASÍ 1976-1988. Hann var varaforseti ASÍ 1980-1988 og í miðstjórn Sjálfstæðisflokksins 1977-1989. Þá var hann um tíma stjórnarformaður Dagblaðsins hf., í stjórn Frjálsrar fjölmiðlunar og stjórnarformaður útgerðarfyrirtækisins Ögurvíkur hf.
Heimild: http://www.mbl.is/greinasafn/grein/1182315/?item_num=10&dags=2007-12-27