Fæddist í Álfsnesi í Lágafellssókn 8, okt. 1908, lést í Reykjavík 29. ágúst 2003. Giftist Sigvalda Jónassyni, þau slitu samvistum. Barn: Guðmundur E. Sigvaldason. Birgitta hóf störf í mjólkurbúð árið 1933 og vann óslitið við afgreiðslustörf alla tíð. Hún var formaður félags Afgreiðslustúlkna í brauða- og mjólkurbúðum í Reykjavík um áratuga skeið og tók virkan þátt í félagsmálastarfi innan Alþýðusambands Íslands.